Valin á Fringe Festivalið í Edinborg

miðvikudagur, 7. júlí 2010

Lokaverkefni Snædísar Lilju hefur verið valið til sýningar í lok ágúst á leiklistarhátíð í Edinborg ( Edinburgh Fringe Festival). Hátíðin er ein af stærstu leiklistarhátíðum í Evrópu og er mikill heiður að vera valin til að sýna þar. Verkið verður einnig sýnt í byrjun ágúst í Reykjavík á sviðslistarhátíðinni ArtFart.

Snædís Lilja Ingadóttir var að ljúka námi í Leiklist frá Rose Bruford College í London.

Verkið sem nefnist Just Here! skoðar innra rými manneskjunnar. Hvernig við tökumst á við okkar innra rými og hvað það er ?

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is