Frumsýning á Colorblind verki Sigríðar Soffíu Níelsdóttur

þriðjudagur, 6. júlí 2010

Þann 29.júní síðastliðinn var dansverkið Colorblind eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur frumsýnt í Bytom, Póllandi.

Verkið er hluti af danshöfundaskiptum milli Silesian Dance Theater í Póllandi og Íslenska Dansflokksins. Sigríður Soffía samdi verk fyrir Silesian Dance Theater en Jacek Luminski samdi verk fyrir Íslenska Dansflokkinn en bæði verkin voru frumsýnd þann 29.júní á einu stærsta dansfestivali í Póllandi.

Sigríður dvaldi í Bytom í Suður Póllandi í mars og samdi þar verkið en í því dansa 6 dansarar Silesian Dance Theater en tónlist var í höndum Jóhanns Friðgeirs Jóhannssonar og búningar í höndum Ingibjargar Sigurjónsdóttur myndlistarmanns.

Sigríður dvaldi í 10 daga í júní við æfingar fyrir frumsýningu en Colorblind var sýnt á öðrum degi hátíðarinnar. Mikið af erlendum dansflokkum sýna á Konferencjia en þetta er í 14. skipti sem hátiðin er haldin.

Verkið sjálft er mjög sjónrænt og er meðal annars unnið með hveiti og kol í verkinu. Bærinn sem Silesian dance theater er staðsettur í,Bytom, er í mesta iðnaðarhluta Póllands og er m.a. einungis í um klukkustundarfjarlægð frá Auswich-útrýmingarbúðunum, það setur soldið stemminguna í bænum og kom sú stemming óhjákvæmanlega inn í verkið líka. Kolavinnsla er mjög stór partur af lífi fólks frá Bytom og því urðu kol innblástur í bæði danssmíðarnar og í sviðsmyndinni. Þar sem verkefnið er hluti af "dansbrú" milli Póllands og Íslands var innblástur verksins að mörgu leyti munurinn milli landanna.

Meiri upplýsingar um verkið má finna á www.siggasoffia.wordpress.com

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is