Útskrifast með BA-gráðu í klassískum ballett

mánudagur, 5. júlí 2010

Sæunn Ýr Marinósdóttir útskrifaðist í dag, 1. júli 2010, með BA-gráðu í klassískum ballett frá Ungversku dansakademíunni (Hungarian Dance Academy; Magyar Táncmüvészeti Föiskola) í Búdapest, Ungverjalandi. Er hún fyrst íslenskra listdansara til að útskrifast með BA-gráðu, að því að best er vitað. Áður hefur Sæunn Ýr lokið stúdentsprófi frá Konunglega sænska ballettskólanum í Stokkhólmi vorið 2007. Í ágúst mun Sæunn Ýr síðan fara á samning hjá ballettinum í Dortmund.

Hungarian Dance Academy (Magyar Táncmüvészeti Föiskola) býður upp á 3 ára BA-nám fyrir nemendur sem vilja sækja frekara nám á háskólastigi. Samhliða námi hefur Sæunn Ýr komið fram í sýningu hjá ungverska þjóðarballettinum. Meðal sýninga sem hún hefur tekið þátt í hjá ungverska þjóðarballettinum eru Hnotubrjóturinn, Giselle, Don Quixote, Chopiniana, La Vivandiére, La Bayadere Shades og Carmina Burana. Hún dansaði í Blómavalsi Hnotubrjótsins í uppfærslu fyrir síðustu jól. Sýningar hafa ýmist verið hluti af náminu eða í tilfelli La Bayadere Shades uppfærsla, þar sem ungverski þjóðarballettinn óskaði sérstaklega eftir þátttöku hennar. Var það í fyrsta skiptið sem erlendur nemandi var valinn af ballettinum til að taka þátt í uppfærslu á þessu verki. Á námsárunum í Svíþjóð tók hún þátt í uppfærslu Konunglegu sænsku óperunnar á Rómeó og Júlíu og La Fille Mal Gardeé.

Þess má að lokum geta, að árið 2005 hlaut Sæunn Ýr viðurkenningu Kópavogsbæjar sem framúrskarandi ungur listnemi. Var viðurkenningin afhent á 50 ára afmælishátíð bæjarins.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is