Móanóra hressir upp á umhverfið
sunnudagur, 4. júlí 2010
Móanóra er einn þeirra fjögurra danshópa sem starfar nú sem Sumarlisthópur á vegum Hins hússins og mun koma fram víðs vegar um bæinn. Markmið danstríósins er að kynna hinar ýmsu hliðar listdansins fyrir gangandi vegfarendum og leggur það áherslu á að gleðja augað með fjölbreyttum uppákomum. Stelpurnar mynda form og uppstillingar með tilliti til bygginga og annarra umhverfisþátta. Þær munu nýta fjölbreytt umhverfi, skúmaskot miðbæjarins, bekki, grindverk og styttur.
Mikil fjölbreytni og líflegir búningar einkenna danstríóið og mun hópnum bregða fyrir víða um miðbæinn í sumar.
Danstríóið Móanóra samanstendur af Hildigunni Önnu Hall, Hildi Margréti Jóhannsdóttur og Snæfríði Ingvarsdóttur. Allar hafa þær stundað dansnám frá unga aldri bæði í klassískum ballett og nútímadansi og lagt stund á tónlistarnám. Þær hafa dansað mikið saman undanfarin ár og í vor luku þær öðru ári framhaldsdeildar Listdansskóla Íslands á nútímadansbraut.