Dansandi Drengir
föstudagur, 2. júlí 2010
DANSANDI DRENGIR eru einn af listhópum Hins Hússins í sumar. Dansandi drengir eru þeir Karl Friðrik Hjaltason, Kolbeinn Ingi Björnsson, Sveinn Breki Hróbjartsson og Viktor Már Leifsson. Markmið hópsins er að vekja dans í menningarlífi Reykjavíkurborgar og sýna að hann geti höfðað til allra. Allir hafa þeir mismunandi bakgrunn í dansi s.s. samkvæmisdans, breakdans, spunadans, nútímadans og klassískan listdans en í dag stunda þeir allir dansnám við Listdansskóla Íslands.
Hópurinn mun lífga upp á borgina í sumar og kæta vegfarendur með dansinum á eins fjölbreyttan hátt og náttúrulögmálin leyfa. Hægt er að fylgjast með ferlinu á veraldarvefnum www.dansandidrengir.is og hafa samband í gegnum netfangið dansandidrengir@gmail.com
Með því að smella á eftirfarandi link má sjá eitt af dansverkefnum sumarsins:
http://www.youtube.com/watch?v=SUXJVMTQEqs&feature=player_embedded