Danshópurinn Uppsteyt með uppsteyt í Reykjavík í sumar
fimmtudagur, 1. júlí 2010
Þrjár ungar stúlkur flæktust í vef töfrandi dansheims. Leiðir þeirra lágu saman í krefjandi listdansnámi. Þær hafa sameinað magnaða krafta sína og stofnað danshópinn Uppsteyt. Í samvinnu við Hitt Húsið og með hjálp styrks frá ,,Evrópu unga fólksins" dansa þær í Reykjavík í sumar á óvenjulegum stöðum, sem krefjast þess að áhorfendur líti upp!! Yfirnáttúrulegir hlutir eru stúlkunum hugleiknir og töfrum slungnar hreyfingar verða allsráðandi!Þið megið búast við ævintýrum í sumar! Fylgist vel með!!!
Auður : Hefur stundað dansnám frá fimm ára aldri, bæði í Kanada og á Íslandi í Klassíska listdansskólanum. Hún útskrifaðist úr MH vorið 2006 og útskrifaðist úr þriggja ára námi á nútímadansbraut í maí 2009 og stundar nú háskólanám við Concordia University í Kanada á danssmíðabraut.
Katrín Þóra: Hefur stundað nám í dansi í Klassíska listdansskólanum frá fimm ára aldri, útskrifaðist af klassískri listdansbraut í maí 2009. Stundar nú nám í Söngskólanum í Reykjavík í söngleikjadeild og kláraði 4.bekk náttúrufræðabrautar í Menntaskólanum í Reykjavík i vor.
Unnur: Hefur stundað margs konar dansnám og leiklist í mörg ár og útskrifaðist af nútímabraut Klassíska listdansskólans í maí 2009 og af nátturufrædi- og listdansbraut Menntaskólans við Hamrahlíð.
Gestadansarar: Lilja Rut Jónsdóttir og Lilja Björk Haraldsdóttir
Búningahönnuður: Snæfríður Jóhansdóttir
Hárgreiðsla: Elína Geirsdóttir eigandi Spes-Hár