Danshóparnir Hnoð og Uppsteyt bjóða upp á ókeypis danstíma í sumar
miðvikudagur, 30. júní 2010
Danshóparnir Hnoð og Uppsteyt bjóða upp á ókeypis danstíma í sumar. Tímarnir verða haldnir úti og inni og mikil fjölbreyttni er í boði. Nánari upplýsingar um tímana má finna hér fyrir neðan.
Hnoð er með tíma á hverjum morgni kl 9:00. Allir tímar fara fram í íþróttasal leiklistardeildar LHÍ við Sölvhólsgötu 13, nema annað sé tekið fram. Uppsteyt verður með opna danstíma á þriðjudögum kl.13:00 á Austurvelli. Um er að ræða einfaldan danstíma sem öllum er velkomið að taka þátt í.
Dagskráin er sem hér segir:
Þriðjud. 22. júní: Yogalates, blanda af pilates og yoga
Miðvikud. 23. júní: Útihlaup og teygjur, hittast hjá Fríkirkjunni
Fimmtud. 24. júní: Pilates
Föstud. 25. júní: Enginn tími vegna Föstudagsfiðrildis
Mánud. 28. júní: Ballett
Þriðjud. 29. júní: Contemporary
Miðvikud. 30. júní: Útihlaup og teygjur, hittast hjá Fríkirkjunni
Fimmtud. 1. júlí: Yogalates
Föstud. 2. júlí: Yoga
Mánud. 5. júlí: Contemporary
Þriðjud. 6. júlí: Danspúl
Miðvikud. 7. júlí: Útihlaup og teygjur, hittast hjá Fríkirkjunni
Fimmtud. 8. júlí: Ballett
Föstud. 9. júlí: Enginn tími vegna Föstudagsfiðrildis
Mánud. 12. júlí: Yogalates
Þriðjud. 13. júlí: Danspúl
Miðvikud. 14. júlí: Útihlaup og teygjur, hittast hjá Fríkirkjunni
Fimmtud. 15. júlí: Ballett
Föstud. 16. júlí: Contemporary
Mánud. 19. júlí: Pilates