Vaðall á Humarhátíð

þriðjudagur, 29. júní 2010

Danstvíeikið Vaðall, sem samanstendur af dönsurunum og danshöfundunum Aðalheiði Halldórsdóttur og Valgerði Rúnarsdóttur, mun sýna verkið Var það Gangári? á Humarhátíð sem haldin verður á Höfn í Hornafirði helgina 1.-4. júlí.

Gangárinn er náungi nokkur sem hefur verið uppi frá því fyrstu menn muna. Hann man allt sem gerst hefur, þekkir hvern krók og kima hvort sem litið er til sjávar eða sveita. Saga Hafnar er hans helsta áhugasvið um þessar mundir og hann ætlar að láta gamminn geysa og bjóða fólki í leiðsögn um Höfn á Humarhátíð. Hann mun leiða gesti í um klukkustundalanga gönguferð um bæinn með sögum af götum, húsum, fólki, vættum og hverju öðru sem á leið hans verður. Ef vel verður að gáð vaknar umhverfið til lífsins og ýmsar kynjaverur láta sjá sig samhliða gönguferðinni.

Verkið sem er eins konar staðsértækur “site-specific” gjörningur og söguleg leiðsögn varð til fyrir tilstilli Reykjavík dansfestival 2009 en þá skapaði Vaðall samskonar leiðsögn um Reykjavík. Verkið sem unnið var í samstarfi við Gangárann eða leikhúslistamanninn Ragnar Ísleif Bragason, þótti ganga með eindæmum vel og sótti á þær sú hugmynd að fara með Gangárann af stað í ferðalag út fyrir borgarmörkin. Nú hafa þau skapað verk útfrá sögu Hafnar og hafa fengið til liðs við sig fjöldann allan af listamönnum sem búsettir eru á Höfn, má þar nefna kvennakórinn, leikhópa, tónlistarfólk af ýmsu tagi, bæjarvinnuna og svona mætti lengi telja. Vaðall segir viðtökur Hafnarbúa hafa verið framar öllum vonum og áhugi þátttakenda með eindæmum góður.

Fyrir þá sem þora að leggja í leiðangur með Gangáranum á Humarhátíð ættu að láta sjá sig við Pakkhúsið kl:14 á laugardeginum 3.júlí. Þetta er viðburður fyrir alla fjölskylduna og enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Gangárinn mun halda ferðalaginu áfram og halda vestur til Flateyrar að Humarhátíð lokinni og bjóða í ferðalag þar um slóðir laugardaginn 24.júlí.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is