Guðrún Óskarsdóttir frumsýnir í Amsterdam
föstudagur, 25. júní 2010
Þann 26. júní frumsýnir Guðrún Óskarsdóttir með dansflokknum de Kiss Moves á danshátiðinni Sloterplats í Meervaart leikhúsinu í Amsterdam.
De Kiss Moves er ungur dansflokkur í Amsterdam. Listrænn stjórnandi flokksins er danshöfundurinn Dorottya Kiss. Flokkurinn samanstendur af ólíkum dönsurum þar sem blandað er saman nútímadansi, ballett, hip hoppi, samkvæmisdönsum, þjóðdönsum og fleiri dansstílum þar sem hver dansari fær að að njóta sín en gefst jafnframt tækifæri til að læra af reynslu hinna og miðla eigin reynslu.
Sýningin í júní skiptis í tvo hluta, þrjú verk undir heitinu, It will be og dansverkið Just shut up and DANCE og er það heiti sýningarinnar.
It will be samanstendur af tríó, sóló og kvartett . Allir hóparnir fengu sama "conceptið" til að vinna með en túlka það á mismunandi hátt.
Tríóið sem Guðrún samdi og dansar í fjallar um fortíð, nútíð og framtíð.
Við lifum í nútíð en hversu oft erum við í núinu?
Erum við ekki oft að hugsa til fortíðar og framtíðar?
Just shut up and DANCE var fyrst fumsýnt fyrir ári síðan en er nú sýnt í lengri og endurgerðri útfærslu.
Allir dansararnir taka þátt í uppfærslunni en þeir eru átta og koma frá sex löndum.
Just shut up and DANCE er fjörugt verk sem snýst um það að vera ekki stanslaust að pæla í listrænum sjónarmiðum og reyna að uppfylla óskilgreindar kröfur um hvað er listrænt í dag heldur bara dansa, njóta og hafa gaman.
Just shut up and DANCE verður tekið aftur upp í haust og sýnt víða um Holland ásamt öðru nýju verki.
Sýningar hefjast í lok ágúst og standa fram eftir vetri.