Íslenski dansflokkurinn sýnir á tveimur alþjóðlegum danshátíðum í júnímánuði.

miðvikudagur, 23. júní 2010

Íslenksi dansflokkurinn hélt af stað í dag til Finnlands til að sýna á einni stærstu nútímadanshátíð Norðurlanda sem haldin er árlega í Kuopio. Áhersla hátíðarinnar í ár, sem haldin er nú í 41. skiptið, er á dans frá Argentínu, Kína og Norðurlöndunum. Íd er því þar í góðum félagsskap með helstu dansflokkum þessara landa svo sem Cullberg Ballettinun frá Svíþjóð, Carte Blanche frá Noregi, Argentínska Ballettinum og Shanghai Ballettinum. Í anda þema hátíðarinn mun Íslenski dansflokkurinn sýna þrjú norræna verk sem hafa öll fengið frábæra dóma og verið sýnd víða erlendis. Fyrst ber að nefna hin erótíska og fallega dúett Svanurinn eftir íslendinginn Láru Stefánsdóttur, hið kynngimagnaða dansverk Kvart eftir norska dansleikhúskónginn Jo Strömgren og svo að lokum Endastöð, leikrænt og húmórískt verk eftir Svíann Alexander Ekman.

Í framhaldi heldur Íslenski dansflokkurinn til Póllands þar sem hann mun sýna nýtt frumsamið verk á alþjóðlegri danshátíð í Bytom. Verkið sem sýnt verður er afraksturs viðamikils samstarfs á milli Íslenska dansflokksins og Silesian Dance Theatre í Póllandi. Það má sanni segja að það hafi orðið vistaskipti því Pólski danshöfundurinn Jacek Luminski kom til Íslands og skapaði verk með fjórum dönsurum Íd en íslenski danshöfundurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir fór hinsvegar til Póllands og vann þar nýtt verk með sex dönsurum frá Silesian Dance Theater. Bæði verkin verða frumsýnd á danshátíðinni í Bytom nú í lok júní en verða svo einnig sýnd hérlendis í haust.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is