Ragnheiður Bjarnarson sýnir tvö frumsamin íslensk dansverk á Jónsvöku.
mánudagur, 21. júní 2010Staðsetning: Nýlistasafnið
Sýningardagar: Laugardagur kl 18:00 (Þráðarhaft sýnt), sunnudagur kl 14:00 (Kyrrja sýnt)
Aðgangseyrir: Frítt inn.
Upplýsingar: jonsvaka.is eða á fésbókarprófíl Jónsvöku.
Einnig er hægt að hafa beint samband við Ragnheiði, netfang eða í síma 697-8633.
Ragnheiður Bjarnarson (höfundur verkanna) útskrifaðist af dansbraut Listaháskóla Íslands vorið 2009. Hún var í fyrsta útskriftarárganginum.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ragnheiður unnið við danslistina í fjöldamörg ár. Hún er meðlimur í danshópnum Íslensku Hreyfiþróunarsamsteypunni, en hópurinn var tilnefndur til Grímuverðlauna árin 2009 og 2010.
Ragnheiður er að hefja listrænan sólóferil sinn, en hún frumsýndi nýjasta verkið sitt, Kyrrja, 20. maí síðastliðinn. Í september mun Ragnheiður frumsýna annað frumsamið verk á Bæjarlistahátíðinni í Mosfellsbæ og hefur verkefnið hlotið styrki frá Barnamenningarsjóði og Mosfellsbæ.
Um verkin:
Þráðarhaft.
Þú veist ekki hvenær það mun gerast.
Þær eru úti um allt og sniglast allt um kring.
Höldum áfram og fylgjum þræðinum.
Kannski við sjáum litina, verurnar, dúfurnar.
Er þetta raunverulegt eða einn stór galdur?
___________________________
Hvað gerist ef persónueinkenni eru tekin í burt?
Erum við enn þá sama manneskjan og áður
eða erum við breytt?
Sýna okkar persónulegu einkenni hvaða innri mann við berum?
Aðstandendur verksins:
Hugmynd: Ragnheiður Bjarnarson
Tónlist: Örn Eldjárn
Textar: Ragnheiður Bjarnarson
Hreyfingar: Ragnheiður Bjarnarson
Sviðsmynd & búningar: Ragnheiður Bjarnarson
Kyrrja
Skynjum við litbrigði martraða?
björt sem mjöll
rjóð sem rós
tinnusvört
Komdu á vit ævintýranna -
og ef þú rýnir vel gæturðu séð engla...
____________________
Er tvískiptur heimur nauðsynlegur til að skilja jafnvægið á milli þeirra?
Eru hinir samfélagslega illu eins vondir og við viljum halda?
Eru þeir illu að reyna að fá okkur til að horfast í augu við okkur sjálf?
Hvað kraumar undir hinu góða yfirborði?
Hvað gerist ef prinsessan deyr?
Aðstandendur verksins:
Höfundur: Ragnheiður Bjarnarson
Hugmynd: Ragnheiður Bjarnarson, Hjördís Árnadóttir
Tónsmíð: Jóhann Friðgeir Jóhannsson
Textasmíð: Snæbjörn Brynjarsson
Danssmíð: Ragnheiður Bjarnarson
Sviðsmynd & Búningar: Ragnheiður Bjarnarson