Raven á Abundance danshátíð í Svíþjóð
fimmtudagur, 10. júní 2010
Þann 16. júní næstkomandi sýnir Hrafnhildur Einarsdóttir, danslistamaður, verkið sitt Hrefna á Abundance, alþjóðlegri danshátíð sem haldin verður dagana 15.-18.júní í Karlstad í Svíþjóð.
Um það bil hundrað dansarar, danshöfundar og dansfræðingar frá 30 löndum koma saman á hátíðinni og skapa spennandi dagskrá fyrir áhorfendur og þátttakendur.
Frekari upplýsingar um hátíðina er að finna á: http://dans-i-varmland.regionvarmland.se/