Dansleikhússýningin Húmanimal hrífur í Kanada
þriðjudagur, 1. júní 2010
Leikhópurinn ,,Ég og vinir mínir” er snúinn heim eftir landvinninga í Kanada þar sem hann sýndi hið vinsæla verk sitt, Húmanimal, í þremur borgum á Vestur-Íslendingaslóðum í Manitoba fylki. Hópurinn var þar á vegum listahátíðarinnar ,,Núna-Now”, en sú hátíð hefur lagt sig fram um að byggja brú milli þessara skyldu menningarheima og bjóða árlega til Vesturheims framúrskarandi íslensku listafólki.
Danshöfundar verksins eru Margrét Bjarnadóttir og Saga Sigurðardóttir, en þær hlutu Grímuverðlaunin 2009 fyrir þá vinnu, auk þess sem Margrét Bjarnadóttir hlaut verðlaunin sem dansari ársins í þeirri sömu sýningu. Húmanimal var frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu vorið 2009.
Ameríkufrumsýning á Húmanimal varð í Winnipeg, höfuðborg Manitoba fylkis, 21. maí síðastliðinn, en í kjölfarið sýndi hópurinn við áframhaldandi fögnuð í Gimli og Riverton.
Leikhópinn að þessu sinni skipuðu Álfrún Örnólfsdóttir, Friðgeir Einarsson, Friðrik Friðriksson, Gísli Galdur, Margrét Bjarnadóttir, Saga Sigurðardóttir og tveir nýir Vinir, dansarinn Valgerður Rúnarsdóttir og leikarinn Sveinn Ólafur Gunnarsson, en þau hlupu í skarðið fyrir tvo nýbakaða foreldra sem áttu ekki heimangengt, Dóru Jóhannsdóttur og Jörund Ragnarsson. Þá voru sviðsmyndahönnuðurinn Rósa Kristjánsdóttir og ljósahönnuðurinn Jón Þorgeir Kristjánsson einnig með í för.
Framundan hjá leikhópnum er nýtt frumsamið verk, ,,Verði þér að góðu", sem sett verður upp á fjölum Þjóðleikhússins vorið 2011.
Ljósmynd: Leif Norman