Fjölskyldumessa í Fella- og Hólakirkju

þriðjudagur, 27. apríl 2010

Síðastliðinn sunnudag 25. apríl dönsuðu fjórir nemendur Listdansskólans við fjölskyldumessu í Fella- og Hólakirkju. Messan var þáttur í barnamenningarhátíðinni sem lauk einmitt í dag. Atriðið þeirra "Fix me Jesus" var hluti af vorsýningu skólans þann 31. mars síðastliðinn og ætti heima við messur sem víðast í kirkjum landsins.

Dansararnir að þessu sinni voru Gunnhildur, Kalli, Kolbeinn og Viktoría öll á fyrsta ári framhaldsdeildar en sami hópur dansaði á Páskadagsmorgun við messu hjá Óháða söfnuðinum nema þar dansaði Viktor í stað Kalla.

Auk þessa sýninga hafa nemendur dansað við ýmis tækifæri í vetur eins og nokkra Töfrahurðartónleika í Salnum í Kópavogi, Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi og Sjóminjasafninu Víkinni.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is