Keðja Reykjavík auglýsir eftir tillögum
mánudagur, 26. apríl 2010Keðja Reykjavík auglýsir eftir tillögum að sviðlistaviðburðum eða bræðingi að dansi, tónlist og leiklist þar sem tekist er á við form sviðslista með nýstárlegum og framsæknum hætti. Óskað er eftir tillögum frá einstaklingum, listhópum og stofnunum. Viðburðir geta farið fram jafnt utandyra sem innandyra, á leiksviðum sem og í öðrum rýmum.
Keðja Reykjavík er umfangsmikill alþjóðlegur sviðslistaviðburður sem haldinn verður 8. – 10.október 2010 n.k. Viðburðurinn er á vegum Íslenska dansflokksins, Listaháskóla Íslands, Borgarleikhússins, Sjálfstæðu leikhúsanna og Reykjavík Dance Festival.
Gert er ráð fyrir yfir 300 erlendum gestum á Keðju Reykjavík og er það fjölmennasta heimsókn erlendra gesta til íslensks sviðlistafólks frá því Evrópska listaþingið IETM var haldið í Reykjavík í október árið 2000. Í tengslum við Keðju verður efnt til sérstaks “showcase” og boðið til landsins alþjóðlegum kaupendum sviðslistasýninga.
Skilyrði er að viðburðurinn sem gerð er tillaga um takist á við form sviðslista með nýstárlegum hætti.
Sérstök áhersla verður lögð á viðburði þar sem ólíkir listamenn koma saman og deila vinnuaðferðum í leit að nýjum viðmiðum. Tillögur að nýjum verkum sem og þegar framleiddum viðburðum og sýningum verða teknar til greina. Skilyrði er þó að verkefnið hafi verið frumsýnt eftir október 2008.
Verkefnavalsnefnd Keðju Reykjavik fer yfir tillögur og velur úr þeim. Í henni sitja Ólöf Ingólfsdóttir, danshöfundur, Una Þorleifsdóttir, leikstjóri, Frank Hall, leikhúsráðunautur og Ása Richardsdóttir, stjórnandi Keðju Reykjavík.
Tillögur skulu sendar á netfangið asa@id.is fyrir 4. maí 2010.
Með tillögum skulu fylgja upplýsingar um:
- Verkefnið, lýsing á viðfangsefni þess og listrænum markmiðum
- Aðstandendur viðburðarins og fjölda listamanna sem tekur þátt í honum
- Þarfir vegna sýningarstaðar, tækni og annarra þátta sem viðburðurinn krefst
Jafnframt skal senda myndrænt efni á myndbandi og/eða ljósmyndum, um viðburðinn eða fyrri verk höfunda á heimilisfangið: Keðja Reykjavik, c/o Ása Richardsdóttir, Borgarleikhúsið, Listabraut 3, 103 Reykjavík
Keðja Reykjavik mun veita samþykktum verkefnum fjárframlag eftir nánara samkomulagi. Keðja Reykjavik mun ekki bera fullan kostnað af framleiðslu viðburða.
Verkefnavalsnefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum innsendum tillögum.