Allir á svið! Stefnumót sviðslista- og skólafólks

föstudagur, 23. apríl 2010

Ættu öll íslensk börn að fá tækifæri til að stunda og njóta sviðslista sem hluta af sinni skólagöngu? Geta greinar eins og leiklist og dans geti svarað kalli samtímans eftir fjölbreyttara skólastarfi og áherslu á skapandi og gagnrýna hugsun? Stefnt verður saman listafólki, kennurum og öðrum áhugasömum um sviðslistir og skólastarf. Nokkur örstutt erindi sem varpa ljósi á stöðu sviðslista í íslenskum skólum.

Leiklistarsamband Íslands og Barnamenningarhátíð í Reykjavík 2010 standa sameiginlega að málþingi þar sem stefnt verður saman listafólki, kennurum og öðrum áhugasömum um sviðslistir og skólastarf. Þingið er í formi nokkurra örstuttra erinda sem öll varpa ljósi á stöðu sviðslista í íslenskum skólum og
barnamenningu. Hverju erindi lýkur á spurningu til fundarins.

Frummælendur þingsins eru:
Peter Anderson dansari.
Pétur Eggerz frá Möguleikhúsinu.
Soffía Þorsteinsdóttir leikskólastjóri á Sæborg og formaður Faghóps listgreinakennara í leikskólum ásamt Arndísi Gísladóttur kennara.
Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg.
Ólafur Guðmundsson leiklistarkennari í Hlíðaskóla og stjórnarmeðlimur í FLÍSS (Félag um leiklist í skólum).
Vigdís Jakobsdóttir frá Fræðsludeild Þjóðleikhússins.

Þátttakendur málþingsins ræða spurningar frummælenda í litlum hópum og gera í kjölfarið sameiginlegar tillögur að vegvísum til framtíðar. Leiklistarsambandið mun að málþingi loknu koma þessum vegvísum til þeirra aðila sem geta haft áhrif.

Hvenær
Laugardagur 24.apríl 10:00 - 14:00

Hvar
Víkin - Sjóminjasafnið
Grandagarður 8
101 Reykjavík

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is