KORUS í Loftkastalanum á Alþjóðlega dansdeginum 29.apríl kl. 20:00
þriðjudagur, 20. apríl 2010
Félag íslenskra listdansara fagnar degi dansins í ár með nýjum og spennandi dansviðburði. Vinsældir danskeppna með ýmsu sniði fara sífellt vaxandi og er hugmyndin að KORUS liður í því að auka við skemmtilegra flóru danskeppna hérlendis. Um er að ræða hópdanskeppni með frjálsri aðferð þar sem meðlimir hópsins spreyta sig með FRUMSAMINN dans.
Hér er um nýjan og spennandi vettvang að ræða fyrir upprennandi dansara en keppt er í tveimur aldursflokkum, 13-15 ára og 16-20+ára.
Von er á hörkuspennandi keppni en 50 keppendur eru skráðir til leiks frá hinum ýmsu listdansskólum sem starfræktir eru innan Félags íslenskra listdansara. Lögð er áhersla á frumsköpun í dansi óháða dansstíl þar sem hugmyndaauðgi og dansgleði er í fyrirrúmi.
Mögnuð og skemmtileg dansupplifun !
Fjölmennum á degi dansins og eigum skemmtilegan dag saman í Loftkastalanum.
Miðasala er á midi.is og við innganginn.
Miðaverð 2000 kr.
ATH. 1500 kr. gegn framvísun Danskortsins, selt við innganginn.
Frítt fyrir 7 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.