Darí Darí Dance Company sýnir í Gent í Belgíu

mánudagur, 19. apríl 2010

Guðrún Óskarsdóttir og Katla Þórarinsdóttir munu halda til Gent í Belgíu næstkomandi miðvikudag þar sem Darí Darí Dance Company sýnir dansverkið Marbara á alþjóðlegu danshátíðinni Rêverie dagana 20. - 26. apríl. Verkið verður sýnt 22., 23. og 24. apríl.

Dansverkið Marbara var frumsýnt á Reykjavík Dance Festival haustið 2009 en auk þess hefur það verið sýnt í Turin á Ítalíu og í jóladagatali Norræna hússins 2009.

Alþjóðlega danshátíðin Rêverie er ætluð ungum danshöfundum til að koma verkum sýnum á framfæri, með það að markmiði að minnka bilið á milli listmannsins og áhorfenda. Áhorfendum gefst kostur á að fara á opna æfingu eða á námskeið hjá hverjum dansflokki fyrir sig og gefst þannig tækifæri til að kynnast starfsemi mismunandi hópa. Í ár eru 13 verk á hátíðinni frá 11 löndum.

Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu Rêverie

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is