Uppselt er á sýning Íslenska dansflokksins á alþjóðlegri danshátíð í þýskalandi
mánudagur, 12. apríl 2010
Íslenska dansflokknum hefur verið boðið að sýna á stórri alþjóðlegri nútímadanshátið, Tanz Bremen, sem er haldin árlega í Bremen og verður nú dagana 9.-17. apríl. Dansflokkurinn sýnir þar ásamt fjölda þekktra dansflokka og danshöfunda og sem dæmi má nefna að þá sýnir hinn heimsþekkti flokkur Les Ballet C de la B á hátíðinni og danshöfundarnir André Gingrás og „Guy and Roni“ eru einnig með verk á dagskránni.
Upppselt varð fyrir mörgum vikum á sýningu Íslenska dansflokksins. Íd býður gestum hátíðarinnar upp á fjölbreytt kvöld með þremur mjög ólíkum verkum sem sýna vel breidd dansflokksins. Á dagskránni hjá Íslenska dansflokknum eru tvö verk eftir þekkta og virta danshöfunda. Fyrst ber að nefna verðlaunaverkið Kvart eftir norðmanninn Jo Strömgren, en Kvart er magnað dansverk sem krefst mikillar færni af dönsurunum. Endastöð eftir svíann Alexander Ekman er svo létt dansleikhúsverk sem kitlar hláturtaugarnar . Þriðja verkið er Heilabrot eftir Brian Gerke og Steinunni Ketilsdóttur sem er nýtt og ferskt tvíeyki frá Íslandi þekkt fyrir kómíska, jafnvel grátbroslega, og óhefðbundna sköpun.