The Great Escape

laugardagur, 10. apríl 2010

Dansarinn Saga Sigurðardóttir mun ásamt sviðslistamanninum Friðgeiri Einarssyni dvelja á næstunni í skapandi erindagjörðum í Stokkhólmi þar sem Sögu og Friðgeiri hefur boðist vinnusmiðja hjá Moderna Dansteatern, meginmiðstöð danslista þar í borg.
Saga og Friðgeir munu þar leggja drög að nýju sviðsverki sem hlotið hefur vinnuheitið The Great Escape, en þau njóta til þess aðseturs og fagmannlegrar aðstöðu hjá Moderna í tvær vikur. Þá munu þau koma fram og sýna verk í vinnslu ásamt fleiri listamönnum á opnu kvöldi í leikhúsinu 14. apríl, en þann 24. apríl koma þau einnig fram á skipulagðri menningarnótt á vegum Moderna Dansteatern.
Saga hlaut fararstyrk frá Nordisk Kulturkontakt vegna dvalarinnar í Stokkhólmi.
Að auki má geta þess að 9.-10. apríl dansar Saga í Brakke Grond leikhúsinu í Amsterdam, en þar kemur hún fram í verkinu BLUFF eftir svissnesku listakonuna Alexöndru Bachzetsis sem frumsýnt var í Zurich síðastliðið haust: www.alexandrabachzetsis.com

Mynd© Melanie Hofmann/Friðgeir Einarsson

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is