Blóð - sviti - tár : Íslensk dansverk í Hafnarfjarðarleikhúsinu

fimmtudagur, 8. apríl 2010

Danstvennan Taka#2 verður haldin í Hafnarfjarðarleikhúsinu dagana 13. og 15. apríl næstkomandi.
Á dagskrá eru verkin 900 02 eftir sviðslistamanninn Leif Þór Þorvaldsson og danslistamanninn Sigríði Soffíu Níelsdóttur og SHAKE ME eftir Íslensku hreyfiþróunarsamsteypuna.

Bæði verkin voru sýnd við frábærar viðtökur áhorfenda fyrr í vetur og því hafa listamennirnir ákveðið að efna til örfárra endursýninga sem dansunnendur mega svo sannarlega ekki missa af.

Báðir hóparnir hafa verið áberandi í dansheiminum að undanförnu. Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan var tilnefnd til Grímunnar árið 2009 fyrir verk sitt DJ Hamingja og hið tilraunakennda verk Leifs, Endurómun, var sýnt í Borgarleikhúsinu í janúar síðastliðnum og vakti mikla athygli. Sigríður Soffía hefur nýlokið við að semja verkið Colorblind fyrir Silesian Dance Theater í Póllandi, en verkið verður sýnt hér á landi í júní í samstarfi við Íslenska dansflokkinn.

Miðaverð er aðeins 1500 krónur en tekið er við pöntunum í síma 555-2222 og taka.tvo@gmail.com

 

Um verkin:

Shake Me:

Í Shake Me gerir Hreyfiþróunarsamsteypan dramatíska tilraun til að drepa sig.
Við deyjum úr ást, af sæmd, alveg óvart, fyrir misskilning, af annarra manna völdum eða einfaldlega af því að okkur langar það. Er ennþá hægt að upplifa raunverulegar tilfinningar í daglegu lífi eða þurfum við að búa þær til? Að þessu sinni leitum við að yfirvofandi dauða og ódauðlegri ást í harmleikjum William Shakespeare.

 

Persónur og leikendur

Ásgerður Gunnarsdóttir: Júlíus Sesar, Laertes, Óþelló, Tamara
Katrín Gunnarsdóttir: Kassíus, Kládíus, Júlía, Títus, Kordelía
Melkorka Sigríður: Hamlet, Rómeó, Lavinia, Lér, Kaska
Ragnheiður S. Bjarnarson: Brútus, Geirþrúður, Desdemóna, Satúrníus
Hannes Óli Ágústsson - leikmaður
Aðstoð við gerð sýningar: Víkingur Kristjánsson
Tileinkað MJ, Pinu Bausch og Merce Cunningham

 

Um 900 02

Hljóðverkið er upptaka af tónstefi að eyðast smátt og smátt í segulbandstæki. Undir því tapar lýsingin 20 sekúntubrotum á hverri mínútu á sama tíma og dansinn virkar sem lifandi klukka í ferlinu.
Með þessum þremur ferlum erum við leidd á dáleiðandi í átt að tóminu.

Verk eftir Leif Þór Þorvaldsson og Sigríði Soffíu Níelsdóttur

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is