Margrét Sara semur hreyfingar fyrir WORTH#1
fimmtudagur, 1. apríl 2010
Margrét Sara Guðjónsdóttir(www.panicproductions.is) mun semja hreyfingar fyrir nýtt sviðs verk eftir Rahel Salvoldelli (www.gutestun.com) og Tim Habeger (www.pushpushtheater.com), tittlað WORTH#1.
Verkið er samvinuverkefni milli Push Push leikhússins í Atlanta (U.S.A) og GutesTun leikflokksins í Berlín auk íslenska sviðsverka fyrirtækisins Panic Productions og er unnið í sameiningu af þáttakendum. Þema verksins er endurmat á gildum, peningum, samfélaginu og samböndum. Hugtakið “gæði” verður tekið rækilega fyrir.
Verkið er partur af IETM festivalinu í Berlín(www.ietm.org) og verður frumsýnt þann 16.apríl í Ballhaus Ost leikhúsinu(www.ballhausost.de) og svo sýnt 17,18.apríl.