Saga&Magga kæla niður eftir Laurie Anderson í Uppsala.

miðvikudagur, 31. mars 2010

Tvíeykið Saga&Magga, danslistamennirnir Margrét Bjarnadóttir og Saga Sigurðardóttir, halda til Uppsala í næstu viku þar sem þær munu koma fram á árlega tónlistar- og performansfestivalinu TUPP í Borgarleikhúsi Uppsala. Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er bandaríska listakonan Laurie Anderson sem mun flytja þar nýtt margslungið verk, Delusion, sem hún ferðast nú með ásamt fríðu föruneyti um heiminn. Verk Anderson verður flutt í leikhúsinu fjögur kvöld í röð meðan á festivalinu stendur, en í kjölfar hverrar sýningar fylgir svo annað verk eftir yngri og upprennandi listamenn. Eftir frumflutning á Delusion þann 7. apríl munu Margrét og Saga njóta þess heiðurs og flytja verk sitt ‘PRETTY BASSIC, sviðsett hljóðverk fyrir tvo flytjendur og tvo rafmagnsbassa’, sem þær sömdu í samvinnu við tónlistarmanninn Úlf Hansson. PRETTY BASSIC var frumsýnt á Reykjavík Dance Festival síðastliðið haust. Úlfur Hansson verður þó ekki með í för að þessu sinni því hann mun sama dag leggja upp í tónleikareisu með Jóni Þór Birgissyni, Jónsa.

Sjá nánar um PRETTY BASSIC og TUPP festival: http://www.uppsalastadsteater.se/2010/tupp/saga-magga-pretty-bassic/

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is