Opin generalprufa á Colorblind á morgun...
mánudagur, 29. mars 2010
Opin generalprufa verður á morgun á verki Sigríðar Soffíu "Colorblind" í Bytom,Pollandi. Sýningin verður ekki formlega frumsýnd fyrr en í Júní en þá deilir hún kvöldi með nýju verki Jacek Luminski sem hann hefur samið fyrir Íslenska dansflokkinn.
Verkið Colorblind var samið fyrir dansflokk Jaceks, Silesian Dance Theater eða Slaski Teatr Tanka. Í verkinu dansa 6 dansarar flokksins þau Agnieszka Doberska, Sylwia Hefczy?ska, Anna Piec, Jaros?aw Karch,Aleksander Kopanski & Daniel Galaska.
Tónlistin er eftir Jóhann Friðgeir Jóhannson en búningahönnun sáu myndlistarmaðurinn Ingibjörg Sigurjónsdóttir og búningahönnuðurinn Hanka.
Verkefnið er hluti af Pólsk-Íslenskum danshöfundaskiptum á vegum Íslenska dansflokksins.
Bæði verkin verða því frumsýnd í Bytom,Pollandi á stærstu danshátíð ársins í Silesiu en verkin verða svo bæði sýnd í Borgarleikhúsinu í haust.
Nánari upplýsingar um verkið má finna á www.siggasoffia.wordpress.com