Bekkur/Bænk 1,2,3…

sunnudagur, 28. mars 2010

Dansmyndbandsverk kynnt í Reykjavík og Kaupmannahöfn 2010

SALTS, eru íslenski listamaðurinn Ingi Jensson og þýski danshöfundurinn Heike Salzer, en þau munu á næstunni setja upp dansmyndbands-innsetninguna Bekkur/Bænk 1,2,3… Myndbandsverkið verður í aprílmánuði flutt samtímis á kaffihúsum í borgunum tveimur þar sem verkið var unnið og myndað, í Kaupmannahöfn og Reykjavík, og jafnframt í heild sinni á veraldarvefnum og sem styttri myndbrot fyrir farsíma. SALTS vinna verk sem flakka á mörkum nokkurra listforma og sameina m.a. dans, stafræna miðla og teiknimyndaformið, en þau miða að því að birta fólki list þar sem hennar er síst von! Kaffihúsin Tíu dropar á Laugavegi í Reykjavík og Café Salonen í Kaupmannahöfn munu hafa dansverkið til sýnis á sínum veggjum út aprílmánuð, auk þess sem sérstök sýning verður á verkinu í Dansehallene, miðstöð nútímadanslistar í Kaupmannahöfn, á myndverkahátíð þar í maí. Verkefnið mun halda áfram að þróast á vefnum það sem af er ári og má fylgjast með framgangi þess á heimasíðunni www.bb123.tv. Dansarar í verkinu eru Saga Sigurðardóttir og Søren Urup.

 

Stutt ágrip SALTS:

Ingi Jensson (fæddur á Íslandi 1970) - Ingi er fjölhæfur myndlistarmaður og vinnur sem slíkur innan ólíkra geira svosem við teiknimyndir, myndskreytingar og storyboarding, myndbandsgerð og performans. Verk hans hafa verið birt og flutt á Íslandi, í Hollandi og á Spáni, en Ingi er einnig meðlimur í listamannasamstepunni Platform Arts í Middlesbrough á Englandi. www.ingi.nl

Heike Salzer (fædd í Þýskalandi, 1973) - Heike er danslistamaður; danshöfundur og dansari, og hefur kennt við greinina í margvíslegu faglegu samhengi. Megin viðfangsefni hennar í sköpun og kennslu er svokölluð staðbundin vinna, eða “site specific”, með tæknilegri nálgun af ýmsu tagi. Hún hefur sett verk á svið í Austurríki, á Íslandi og í Hollandi, komið fram í staðbundnum danssýningum víða og hefur auk þess verið boðið til kennslu sem sérstakur gestur á ýmsum alþjóðlegum vettvangi. Hún nam við Danslistaháskólann í Arnhem í Hollandi og lauk MA-gráðu í kóreógrafíu frá University of Leeds í Englandi. Frá vorinu 2008 hefur hún starfað sem deildarstjóri fyrir BA nám í dansi við Teesside University.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is