"Uniform Sierra sýnd á Loikka Festival"
föstudagur, 26. mars 2010
Dansmyndin Uniform Sierra eftir Sigríðar Soffíu Níelsdóttur verður sýnd á morgun á Dansmyndahátíðinni Loikka í Helsinki, Finnlandi. Loikka hátíðin einblínir í ár á myndir sem ná að sameina kvikmynda og dansformið á þann hátt að áhersla sé á flæði myndanna í stað sögulegra framvindu.
Aðaláhersla hátíðarinnar eru sýningar á myndum en einnig verða fyrirlestrar og leik/danssýningar partur af hátíðinni.
Einungis 10 myndir voru valdar til sýningar á opna hluta hátíðarinnar en auk Uniform Sierra verða sýndar Sandchair eftir Ungverska danshöfundinn Zoltán Nagy, Sound steps eftir Anne Theresa De Keersmaeker, Somewhere in between eftir Meg Stuart, Les ballets de ci de lá eftir Les Ballets C de lá B.
Uniform Sierra hefur verið sýnd á festivölum á Spáni, Noregi, Íslandi og nú Finnlandi en myndin var valin “besta mynd” á Actfestival í Bilbao á Spáni auk þess að fá áhorfendaverðlaun á Stuttmyndadögum í Reykjavík 2008.
Sigríður nær því miður ekki að vera viðstödd sýningar myndarinnar vegna landfræðilegra aðstæðna þar sem hún er nú stödd í Póllandi en þar hún semur nýtt verk fyrir Silesian dance Theater