Vorsýning Listdansskóla Íslands
fimmtudagur, 25. mars 2010
Listdansskóli Íslands heldur sína árlegu vorsýningu miðvikudaginn 31. mars á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.
Sýningarnar verða tvær, sú fyrri kl. 17:00, en seinni sýningin kl. 20:00. Allir nemendur skólans koma fram á sýningunum.
Á efnisskrá verður klassíska dansverkið Paquita eftir Marius Petipa, þrjú stutt frumsamin nútímadansverk eftir kennara skólans, Cameron Corbett, Guðmund Helgason og Gunnlaug Egilsson, Karnival dýranna við tónlist eftir franska tónskáldið Camille Saint-Saëns og Revelations eftir Alvin Ailey.
Hægt er að kaupa miða á skrifstofu skólans milli kl. 13:00 og 17:00 virka daga eða við innganginn í Borgarleikhúsinu fyrir sýningu. Gegn framvísun danskortsins fást tveir miðar á 1.000 krónur hver miði (50%afsl) en annars er miðaverð 2.000 krónur.
Hlökkum til að sjá þig.
Bestu kveðjur,
Starfsfólk Listdansskóla Íslands