Reykjavík Dance Festival 2010
miðvikudagur, 24. mars 2010
Reykjavík Dance Festival kallar eftir umsóknum fyrir Reykjavík Dance Festival 2010
- Leitað er eftir dansverkum. Lengd 15 – 40 mínútur
- Hugmyndum að dansgöngum í miðborginni eða úthverfum
- Hugmyndum um innslag í dansgöngur, staðsértæka gjörninga
Enn er óráðið hvar hátíðin í ár verður haldin en fyrirhugað er að hún verði haldin 1. – 5. september.
Óvíst er hvort eða hversu mikinn fjárhagslegan stuðning hátíðin getur veitt í ár og eru umsækjendur því vinsamlegast beðnir um að tilgreina ef verkefnið hefur þegar hlotið styrk.
Erlendum gestum (prómóterum) verður boðið á hátíðina í ár líkt og fyrri ár.
Vinsamlegast sendið umsókn á reykjavik_dancefestival@hotmail.com fyrir 31. mars nk.
Eftirfarandi þarf að koma fram í umsókninni
- Lýsing á verkinu (hámark 1 bls)
- Verk og tímaáætlun
- Lengd
- Tæknileg umgjörð (taka skal fram ef verkið þarfnast sérstakrar tækni, ljós, „live“ tónlist, video, eða annað slíkt)
- CV umsækjanda og annarra þátttakenda
Óháð valnefnd á vegum hátíðarinnar mun velja verk á hátíðina. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Ketilsdóttir í síma 862 6023.
Reykjavík Dance Festival hóf göngu sína árið 2002 og hefur verið gífurleg lyftistöng fyrir þróun og nýsköpun innan listdansins. Á henni stíga fram kynslóðir danshöfunda sem sýna það ferskasta sem nútímadans á Íslandi hefur fram að færa hverju sinni. Reykjavík Dance Festival er mikilvægur hlekkur fyrir listformið og hefur skapað sér fastan sess í menningarlífi borgarinnar.