Dansarar á leið til Tallin
mánudagur, 22. mars 2010
Nemendur dansbrautar Listaháskóla Íslands ásamt tíu nýmiðlanemendum frá Finnlandi, Eistlandi og Svíþjóð munu mætast í vinnustofu í Tallin í Eistlandi dagana 21. mars - 31. mars á vegum DAMA netsins (Dance and Media Arts). Með í förinni verður Áki Ásgeirsson tónsmiður og meistaranemi við tónlistardeild LHÍ.
Afrakstur vinnustofunnar verður afkvæmi listrænnar og tæknilegrar nýsköpunar, tilraunakenndar uppákomur þar sem notast verður jafnt við hreyfingu, mynd og hljóð.
Kvikmyndagerðamenn munu fylgjast með námskeiðinu og taka það upp en efnið verður hluti af heimildamynd sem verið er að gera á vegum Kulturama í Stokkhólmi um dans.