Katla Þórarinsdóttir og Lee Nelson
föstudagur, 19. mars 2010
Sirkus Sóley er spennandi sirkussýning þar sem fjör og dirfska ráða för í jafnvægislistum, gripli, húllahringjum, loftfimleikum og auðvitað sprella trúðarnir.
Búast má við krassandi sirkusatriðum, áhættuatriðum og vænum brögðum sem aldrei hafa sést áður á Íslandi. Frábært tækifæri til að eiga skemmtilega stund með hópnum sínum og skella sér á sirkussýningu á sanngjörnu verði.
Sýningar:
28. mars kl 20:00
29. mars uppselt
30. mars kl 20:00
31. mars kl 15:00 og 20:00
1. apríl kl 15:00 og 20:00
3. apríl kl 15:00 og 20:00
5. apríl kl 15:00 og 20:00
Miðinn kostar aðeins 1200 kr og getum við tekið pantanir fyrir stóra hópa í gegnum netfangið, sirkusislands@gmail.com en miðar eru einnig seldir á midi.is
Í fyrra settum við upp sirkussýninguna Stórasti Sirkus Íslands og varð uppselt á allar sýningarnar og færri komust að en vildu. Því er kjörið að grípa gæsina og tryggja sér miða á góða upplyftingu yfir páskana.
Allar frekari upplýsingar gefur Katla í síma: 777-0910 eða sirkusislands@gmail.com
Við erum líka á Facebook, komdu og kíktu við :)
http://www.facebook.com/pages/Sirkus-island/43354813726#!/event.php?eid=337824026910&ref=mf