4 dansverkefni fá styrk úr Prologos
fimmtudagur, 18. mars 2010
Fimmta úthlutun úr Leikritunarsjóðnum Prologos, sem starfar við Þjóðleikhúsið, hefur nú farið fram. Að þessu sinni bárust alls 49 umsóknir. Um óvenju margar sterkar umsóknir var að ræða, og var því ákveðið að veita fleiri styrki en að jafnaði er gert. Fjórir höfundar hlutu styrk til handritsgerðar og fimm leikhópar fengu styrk vegna leiksmiðjuverkefna og er þetta stærsta úthlutun úr sjóðnum frá upphafi. Af þeim fimm leiksmiðjuverkefna sem hlutu styrk voru þar af fjögur dansverkefni.
Það verður spennandi að fylgjast með framgangi þessara verkefna á næstu misserum:
• Shalala með Inn að beini, dansleikhússpjallþátt með tónleikaívafi, þar sem fólk úr ólíkum listgreinum, dansi, tónlist, leiklist og bókmenntum vinnur saman. Listrænir stjórnendur eru Erna Ómarsdóttir og Valdimar Jóhannsson, ásamt Sjón, en fjöldi annarra listamanna kemur að sýningunni.
• Íslenska hreyfiþróunarsamsteypan, sem skipuð er dönsurunum Ásgerði G. Gunnarsdóttur, Katrínu Gunnarsdóttur, Melkorku Sigríði Magnúsdóttur, Ragnheiði Sigurðard. Bjarnason og Vigdísi E. Guðmundsdóttur, með dansleikhússýninguna Kandíland. Sýningin er unnin upp úr konungaverkum Shakespeares, og að henni koma einnig leikararnir Víkingur Kristjánsson og Hannes Óli Ágústsson.
• Krummafótur kompaní með dansleikhússýninguna Nú skal ég muna þér kinnhestinn, sem byggð verður á persónulýsingum kvenskörunga í Íslendingasögunum. Hópurinn samanstendur af fjórum dönsurum, Katrínu Gunnarsdóttur, Sögu Sigurðardóttur, Sigríði Soffíu Níelsdóttur og Snædísi Lilju Ingadóttur.
• Sigríður Soffía Níelsdóttir með Reykjavík – Bruxelles, þar sem dansarar og sirkuslistafólk frá Íslandi og Belgíu leiða saman hesta sína.