HRÓPÍUM
mánudagur, 15. mars 2010
Stúdentaleikhúsið frumsýndi þessa fallegu sýningu þann 8. mars að Eyjarslóð 9.
Leikhópurinn hefur smíðað sér heim þar sem kallast á hreinleiki, myrkur, harka og hlýja. Þar er glímt við eigin sjálfsmynd og dansað við annarra, í stjórnlausri von um að finna hamingju.
Sýningin er einlæg og djörf. Rétt er að taka fram að hún er ekki við hæfi barna.
Leikstjórn er í höndum Bjartmars Þórðarsonar,
aðstoðarleikstjóri er Tyrfingur Tyrfingsson,
um dans og sviðshreyfingar sér Saga Sigurðardóttir.
Nánar upplýsingar er að finna á vef Stúdentaleikhússins.
Komandi sýningar eru:
miðvikud 17.mars kl 21
fimmtud 18.mars kl 21
laugard 20.mars kl 20
laugard 20.mars kl 23
sunnud 21.mars kl 21
miðvikud 24.mars kl 21
Lokasýning laugard 27.mars kl 21