Spiral dansflokkurinn frumsýnir ÓRAR

fimmtudagur, 11. mars 2010

Spiral dansflokkurinn frumsýnir þann 18. mars verkið ÓRAR. Sýningin verður sýnd dagana 21. 25. og 28. mars klukkan 20:00.

Verkið er nýtt framúrstefnulegt verk samið af Spiral dansflokknum í samvinnu við Sveinbjörgu Þórhallsdóttur, Gianluca Vincentini og Róbert Reynisson.
Í verkinu upplifa áhorfendur andrúmsloft milli svefns og vöku þegar þeir ferðast í gegnum rýmið, og stíga inn í draumaveröld þar sem ævintýri hugans geta breyst í átakanlega martröð á hvaða tímapunkti sem er.
Heimsækið ófyrirsjáanlegan heim undirmeðvitundarinnar í hráu sýningarrými Norðurpólsins á Seltjarnarnesi.

Miðaverð er 1.500 kr og fer miðasala fram á midi.is. Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu Spiral dansflokksins www.spiral.is eða á facebook síðu flokksins.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is