Erna Ómarsdóttir og Damien Jalet

laugardagur, 6. mars 2010

Black Marrow eftir Ernu Ómarsdóttur og Damien Jalet hefur fengið 2 tilnefningar hinna áströlsku Green Room Award fyrir besta dans og besta dansara í kvenhlutverki. Fjögur verk eru tilnefnd i hverjum hópi og valið var úr 54 dansverkum atvinnu danshópa í Ástralíu. Verðlaun verða veitt í lok mars.

Erna Ómarsdóttir samdi verkið í október s.l. ásamt Damien Jalet fyrir Chunky Move, einn mikilvægasta dansflokk Melbourne. Verkið var frumsýnt á Melbournes International Arts Festival sem er ein stærsta listahátíðin í Ástralíu. Tónlist er eftir Ben Frost.

Verk þeirra Ernu og Damiens hafa oft litast af áhuga þeirra á því hvað kom á undan og hvað mun koma á eftir nútíma siðmenningu, einnig af hinni villtu og ótömdu frumhvöt sem brýst út í okkur þegar við þurfum að berjast fyrir tilveru okkar.

Í Black Marrow skoða þau endalok lífs eins og við þekkjum það. Þar eru skoðuð hin djúpstæðu samskipti okkar við plánetuna og mögulega arfleifð siðmenningar sem virðist hafa tapað rótum sínum. Þau grafa niður í frjóa jörð sköpunar, heimsendaspáa og vísindalegra staðreynda í leit að samnefnara fyrir það sem koma skal. Útkoman er olíuþyrstur sölumaður að selja falskar vonir, risaeðlur að drekkja sér í tjörupittum, vélmenni sem hafa tapað forritun sinni, rymjandi völva sem boðar endalokin og grátandi börn sem syrgja það sem áður var

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is