The Talking Tree
fimmtudagur, 4. mars 2010
Evrópska sjónvarpstöðin ARTE sjónvarpaði beint frá sýningu Ernu Ómarsdóttur The Talking Tree, úr Theater National de Chaillot í Frakklandi fyrir stuttu. Sýningin hefur ferðast víða um heim síðan hún var frumsýnd árið 2008 við góðar undirtektir. Upptökuna getur almenningur nú nálgast á vefsíðu ARTE með því að smella hér: http://liveweb.arte.tv/fr/video/The_Talking_Tree_Event__au_festival_Anticodes_du_Theatre_National_de_Chaillot/
Talking Tree er 3000 ára tré lífs og frjósemis, Það er líka tækifærissinni sem treður sér inn á allar hátíðir smærri og stærri og aðra viðburði. Það segir nú sögur af fólki og furðuverum sem það hefur rekist á í gegnum árin og talar um ástir og örlög þeirra, græðgi, öfundsýki og aðrar mannlegar og dýrslegar tilfinningar. Það rifjar upp góðar minningar og slæmar frá saklausum æskuárum sínum áður en það fór að rotna að innan. En þrátt fyrir trévonsku sína hefur tréð auðvitað sínar góðu hliðar og eins og allir menn reynir það stundum að bæta fyrir slæmar gjörðir með því að lífga upp á dáið fólk, og beita töfrabrögðum sínum til að galdra eitthvað æðislegt og gefa börnum nammi.
Margir efast um sannleiksgildi sagnanna og telja þær bull og vitleysu en sjálf hef ég heimildir fyrir tilveru persóna, eins og konunni sem elskaði stein og eignaðist með honum barn (steinbarn) og sokknum sem lærði að spila á piano. Allt er nú hægt ef menn bara trúa á drauminn.
Tréð hefur hafið göngu sína um heiminn og ætlar að breyta honum. Hingað til hefur það troðið sér inn í klúbba og kirkjur og kúluhús úr plasti með verk í vinnslu. En þar sem Tréð er með málæði og valdagreddu(græðgi) mun það ekki hætta að predika og segja sögur fyrr en það er búið að troða sér inn í öll leikhús og hvít hús heimsins og mun hafa öll völdin og getað stjórnað veðri og vindum, verðbréfamörkuðum, genginu, verðbólgu, tískusveiflum, hjónaböndum osfrv, osfrv.
tree of love and fertility
tree of pain and cruelty
tree of power and powerty,,,
I’m the bleeding bloddy tree
I’m the tree of your destiny
Im the tree of wisdom and eternity
I’m the tree of reality
the tree of vanity
the golden growy tree
im the blah blah tree