Sigurvegarar SOLO
laugardagur, 20. febrúar 2010
Að kvöldi öskudags, miðvikudaginn 17. febrúar fór fram SOLO, undankeppni fyrir Stora Daldansen, norrænnar einstaklingskeppni í klassískum listdansi sem haldin verður í Falun í Svíþjóð 13.-15.maí næstkomandi. Það er Félag íslenskra listdansara sem stendur fyrir undankeppninni hérlendis.
Minningarsjóður Svandísar Þulu Ásgeirsdóttur veitti vinningshöfunum styrk til utanfarar en sjóðurinn var stofnaður 2. desember 2008 þegar tvö ár voru liðin frá því Svandís lést í bílslysi aðeins 5 ára gömul. Minningarsjóðurinn styrkir meðal annars unga ballettdansara en Svandís Þula hafði stundað ballettnám í Ballettskóla Eddu Scheving í rúm tvö ár áður en hún lést.
Undankeppnin SOLO er ekki aðeins eina árlega tækifærið fyrir landann til þess að bera klassískan listdans augum heldur einnig mikilvægur vettvangur fyrir íslenska listdansnema til þess að spreyta sig á krefjandi sólóhlutverkum klassískra ballettverka.
Sigurvegarar voru eftirfarandi
- 1. sæti: Karl Friðrik Hjaltason 16 ára
- 2. sæti: Ellen Margrét Bæhrenz 16 ára
- 3. sæti: Sigrún Ósk Stefándsdóttir 18 ára
- 4. sæti: Kara Elvarsdóttir 18 ára
- 5. sæti: Fjóla Ösp Snævarsdóttir 16 ára
Þau koma öll frá Listdansskóla Íslands
Uppröðunin á meðfylgjandi mynd er eftirfarandi: Fjóla, Kara, Sigrún, Ásgeir Ingvi Jóhannsson frá Minningarsjóði Þulu, Ellen og Karl. Myndina tók Heiða Kristín Ragnarsdóttir