KORUS

miðvikudagur, 17. febrúar 2010

Ný og spennandi danssmíðakeppni

Hvers vegna KORUS ?

Vinsældir danskeppna með ýmsu sniði fara sífellt vaxandi og er hugmyndin að KORUS liður í því að auka við skemmtilegra flóru danskeppna hérlendis. Keppnin er einnig hugsuð sem mótvægi við SOLO einstaklingskeppnina í klassískum listdansi og veitir hún ákveðinn fjölbreytileika í dans og félagslíf dansnema sem hingað til hefur verið af skornum skammti.

Um er að ræða hópdanskeppni með frjálsri aðferð þar sem meðlimir hópsins spreyta sig með FRUMSAMIÐ efni. Það er frumskilyrði KORUS keppninnar að keppendur semji dansinn sinn sjálfir. Lögð er áhersla á frumsköpun í dansi óháða dansstíl þar sem hugmyndaauðgi og dansgleði hópsins er í fyrirrúmi :)

Fyrir hverja er KORUS ?

Nemendur í listdansskólum innan Félags íslenskra listdansara hafa þátttökurétt í keppninni. Keppt verður í tveimur aldursflokkum þ.e. 13-15 ára og 16 -20+ ára. Sem fyrr segir þá er hér um hópakeppni að ræða, stærð hópsins skal telja 3-5 þátttakendur.

Skráning í keppnina er hjá FÍLD

Félag íslenskra listdansara er umsjónaraðili keppninnar og auglýsir hér með eftir þátttakendum, hægt er að skrá sig í keppnina á netfangið dance@dance.is eða í síma 6617494. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 31.mars. Keppnisgjaldið er 2500 kr. á hvern þátttakanda.

KORUS keppnin verður haldin á Alþjóðlega dansdeginum fimmtudaginn 29.apríl í Íslensku Óperunni. Frábært tækifæri fyrir upprennandi dansara !

Það er ósk FÍLD að sem flestir dansnemar bretti upp ermar og semji stuttan dans fyrir 29.apríl. Það verður bæði frábær og skemmtileg reynsla að taka þátt í fyrstu KORUS danssmíðakeppninni, stíga á svið Íslensku Óperunnar með frumsamið efni.

 

VEGLEG VERÐLAUN Í BOÐI OG ÓGLEYMANLEG UPPLIFUN !

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is