Ásgeir í IOVIODIO

miðvikudagur, 17. febrúar 2010

Íslenskur dansari, Ásgeir Helgi Magnússon, fer með eitt aðalhlutverkanna í verkinu IOVIODIO eftir ítalska danshöfundinn Gabríellu Maiorino. Verkið var frumsýnt í Melkweg Theater í Amsterdam, 12. febrúar síðastliðinn. Húsfyllir var á allar sýningar og hlaut verkið góðar viðtökur áhorfenda. Danshöfundurinn Gabriella Maiorino hefur þegar getið sér gott orð á evrópsku danssenunni fyrir verk sín Anarchistas og Zoo. Bæði verkin hafa hlotið verðlaun á virtum danshátíðum og verið sýnd víðs vegar um Evrópu.

Upplýsingar um komandi sýningar á IOVIODIO má finna á heimasíðunni www.gabriellamaiorino.net

Ljósmynd: Barbara Revelli

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is