Dansverkið Fresh Meat sýnt í London
mánudagur, 15. febrúar 2010
Dansverkið Fresh Meat sem sýnt var á sviðslistahátíðinni artFart síðastliðið sumar verður sett upp í London í febrúar. Fresh Meat var kosið eitt af 3 bestu verkum ársins af gagnrýnendum Morgunblaðsins ársins 2009.
Tvær sýningar verða á verkinu þann 17.og 18. febrúar í Rose-Theater.
Verkið er samið og flutt af Sigríði Soffíu Níelsdóttur og Snædísi Lilju Ingadóttur en þær útskrifuðust báðar af dansbraut Listaháskólans síðastliðið vor.
Vikuna 15 til 19 febrúar mun fara fram í Rose Bruford College í London átak gegn kynbudnu ofbeldi. Unnið verður með listformið til þess að opna augu fólks fyrir þessu mikilvæga málefni.
Skipuleggjendur munu notast við tónlist, dans, leiklist og myndlist til þess að koma skilaboðunum á framfæri.
Verkið er samvinnuverkefni danshöfundanna Sigríðar og Snædísar, myndlistarmannsins Bjarkar Viggósdóttur og tónlistarmannsins Lydíu Grétarsdóttir. Björk Viggósdóttir sér um sjónrænt umhverfi sýningarinnar en tónlistin/hljóðmynd er eftir Lydíu Grétarsdóttur.