SOLO
sunnudagur, 14. febrúar 2010
Einstaklingskeppni í klassískum listdansi haldin á öskudaginn
Að kvöldi öskudags, miðvikudaginn 17. febrúar munu upprennandi dansarar spreyta sig á sviði Íslensku Óperunnar. Um er að ræða undankeppni fyrir Stora Daldansen, norrænu einstaklingskeppnina í klassískum listdansi sem haldin verður í Falun í Svíþjóð 13.-15.maí næstkomandi. Það er Félag íslenskra listdansara sem stendur fyrir undankeppninni hérlendis en sigurvegarar keppninnar munu síðan keppa fyrir Íslands hönd í aðalkeppninni í Stora Daldansen í Svíþjóð.
Minningarsjóður Svandísar Þulu Ásgeirsdóttur mun veita vinningshöfum styrk til utanfarar en sjóðurinn var stofnaður 2. desember 2008 þegar tvö ár voru liðin frá því Svandís lést í bílslysi aðeins 5 ára gömul. Með minningarsjóðnum vill fjölskylda Svandísar Þulu þakka samfélaginu fyrir þann stuðning sem þau fundu fyrir eftir slysið. Minningarsjóðurinn styrkir meðal annars unga ballettdansara en Svandís Þula hafði stundað ballettnám í Ballettskóla Eddu Scheving í rúm tvö ár áður en hún lést.
Undankeppnin SOLO er mikil lyftistöng fyrir klassíska listdansinn hérlendis. Hún er ekki aðeins eina árlega tækifærið fyrir landann til þess að bera klassískan listdans augum heldur einnig mikilvægur vettvangur fyrir íslenska listdansnema til þess að spreyta sig á krefjandi sólóhlutverkum klassískra ballettverka. Stífar æfingar hafa farið fram í æfingasölum listdansskólanna síðan fyrir jól en keppendur að þessu sinni koma frá Listdansskóla Íslands, Klassíska listdansskólanum og Ballettskóla Guðbjargar Björgvins.
Með keppninni vill Félag íslenskra listdansara skora á íslenska listdansnema og ýta undir áhuga á klassískum ballett. Þátttökurétt í undankeppnina hafa listdansnemar í öllum listdansskólum innan Félags íslenskra listdansara en auglýst var eftir þátttakendum í desember síðastliðinn. 30 keppendur eru skráðir til leiks næstkomandi miðvikudagskvöld. Gera má ráð fyrir spennandi og skemmtilegri keppni þar sem töfraljómi klassískra ballettverka fær að njóta sín.
Miðasala á keppnina fer fram í miðasölu Íslensku Óperunnar, keppnin hefst stundvíslega kl.20:00.
Allir velkomnir og góða skemmtun !
Með góðri kveðju frá stjórn FÍLD.