Íslenski danflokkurinn frumsýnir „Endalaus“
föstudagur, 29. janúar 2010
Fallegt og tilfinningaríkt verk eftir tvo unga framúrskarandi listamenn
Danshöfundur er Alan Lucien Öyen sem er ungur en margverðlaunaður listamaður
Frumsamin tónlist í verkinu er eftir Ólaf Arnalds einn af áhugaverðustu tónlistarmönnum Íslands í dag
Þann 4. febrúar næstkomandi frumsýnir Íslenski dansflokkurinn nýtt verk eftir Alan Lucien Öyen, ungan norskan danshöfund sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín. Alan hefur getið sér gott orð fyrir falleg, tilfinningarík og ljóðræn verk með djúpri innri merkingu.
Alan notar talað orð í dansverkinu til að skapa sérstakan söguþráð í anda heimildarmyndar. Umfjöllunarefni Alans er ástin eða öllu fremur sambandsslit ástvina. Okkur eru birt brot úr hugsunum, endurminningar um horfna ástvini.
Hvað hverfur og hvað situr eftir í minningunni þegar samband tveggja einstaklinga rofnar. „Þegar þú og ég erum ekki lengur við “
Hver saga hefur jafn margar hliðar og þátttakendurnir. „Við færum okkur nokkra metra til vinstri og hlutirnir horfa öðruvísi við “
Tónlistin í verkinu er eftir Ólaf Arnalds sem hefur þrátt fyrir ungan aldur selt þúsundir hljómplatna og fyllt tónleikahallir víða um heim, þar á meðal Barbican Hall í Lundúnum. Tónlist Ólafs færir mann í aðrar hæðir með viðkvæmum, rómantískum og sinfónískum tónsmíðum. Ólafur blandar saman strengjum, píanói og rafmögnuðum áhrifum svo úr verður nýstárleg og forvitnileg súpa klassísks popps.
Sýningar verða á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu: 4/2 7/2 14/2 21/2 28/2 og 7/3