Talking Tree eftir Ernu Ómarsdóttur

miðvikudagur, 27. janúar 2010

Þann 11,12 og 13 febrúar næstkomandi sýnir Erna Ómarsdóttir danshöfundur & dansari verkið Talking Tree í Paris. Verkið verður sýnt í franska leikhúsinu Theatre National de Chaillot en mikill heiður er fólgin í því að fá boð um að koma fram á því sviði. Talking Tree var frumsýnt árið 2008 í Brest, Frakklandi en þetta er 28 sýning verksins.

Verkið hefur meðal annars verið sýnt á Íslandi, Ítalíu, Finnlandi, Belgíu, Svíþjóð, Noregi, Sviss, Spáni og víðsvegar í Frakklandi.

Erna flutti verkið “Digging in the sand with only one hand” 20.janúarsíðast liðinn. Verkið var sýnt í Raffinerie, Brussel í Belgíu. “Digging in the sand…” var frumflutt 2009 á hátíðinni Dansand í Ostende en þá var það sýnt fyrir berum himni á ströndinni. Verkið er innblásið af síðasta kúreka Íslands Hallbirni Hjartarsyni. Nú hefur verkið verið aðlagað sviði en það var m.a. sýnt á skemmtistaðnum Boston nú í vetur.

Erna dansar einnig í verkinu Foi eftir Sidi Larbi Cherkaoui en sýningar eru nú í fullum gangi. Fjórar sýningar voru í Antwerpen í Janúar en verkið verður sýnt í Löven, Belgíu Ludwigsburg, Þýskalandi og París fram eftir vorinu.

Næstkomandi föstudag sýnir Erna með gjörningahópnum Skyr Lee bob í Antwerpen.
Skyr Lee bob samanstendur af Ernu, Guðna Gunnarssyni myndlistarmanni og Lieven Dousselaere tónlistarmanni.

Meiri upplýsingar um Ernu má finna á www.ernaomarsdottir.com

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is