Bára Magnúsdóttir hlýtur þakkarviðurkenningu
mánudagur, 25. janúar 2010
Mikið var um dýrðir í Perlunni þann 21. janúar síðastliðinn þegar Félag kvenna í atvinnurekstri veitti sínar árlegu viðurkenningar við hátíðlega athöfn undir veislustjórn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. Þakkarverðlaunin hlaut að þessu sinni Bára Magnúsdóttir dansfrömuður og voru verðlaunin afhent af Gylfa Magnússyni efnahags- og viðskiptaráðherra og Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka.
Í umsögn um Báru segir:
Bára Magnúsdóttir er óumdeildur brautryðjandi á sviði danslistar og heilsuræktar á Íslandi. Tæplega sjö ára ára hóf hún nám við Ballettskóla Þjóðleikhússins, ekki þó að eigin frumkvæði heldur lét náganni hennar; Rúrik Haraldsson innrita hana í skólann. Og eftir það varð ekki aftur snúið. Fimmtán ára hélt hún í dansnám til London og útskrifaðist með glæsibrag úr hinum virta listaskóla Art Educational. Þegar heim kom byrjaði hún að kenna ballett hjá Sigríði Ármann en fór síðan fljótlega að kenna í eigin nafni þessa áður óþekktu dansgrein hérlendis; jazzballett.
Bára hefur setið í stjórn F.Í.D. (Félags íslenskra danskennara) og í áratug var hún forseti Dansráðs Íslands. Bára lagði snemma metnað sinn í það að danskennarar hennar gætu haft fulla atvinnu af kennslu í skólanum og til að nýta sumrin; „dauða tímann“ í dansinum; bætti hún leikfimi og heilsurækt við starfsemi skólans. Bára hefur nú rekið eigið fyrirtæki í áratugi og nemendurnir skipta tugþúsundum. Árlega stendur JSB fyrir glæsilegum nemendasýningum í Borgarleikhúsinu þar sem stíga á svið 600-700 nemendur og dansa af hjartans list. Allir eru nemendurnir í búningum sem flestir eru saumaðir af skólastýrunni sjálfri; Báru Magnúsdóttur.
Bára er hvergi nærri hætt og er hún auk þess enn að kenna. Árið 2006 fékk Listdansbraut JSB viðurkenningu menntamálaráðuneytisins – sem gerir fólki kleift að stunda listdans sem valgrein til stúdentsprófs. Í vor mun Bára útskrifa fyrst nemendurna af Listdansbraut. Sama ár fjárfesti hún í stóru húsnæði að Lágmúla 7 við hlið höfuðstöðvanna að Lágmúla 9, opnaði á milli og stækkaði þar með húsnæði skólans um meira en helming.