Dansbraut LHÍ

fimmtudagur, 21. janúar 2010

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á dansbraut Listaháskóla Íslands. Frestur til þess að skila inn umsókn er 15. mars en inntökuprófin verða haldin helgina 17.-18. apríl.

Nám í samtímadansi er þriggja ára nám til 180 eininga og undirbýr hæfileikaríka dansnemendur af framhaldsstigi fyrir fjölbreytt starfsvið sem danslistamenn. Að námi loknu og tilskildum prófum og verkefnum hljóta nemendur B.A. gráðu í samtímadansi.

Markmið og tilgangur B.A. náms í samtímadansi er að leiða fram vel þjálfaða, skapandi og forvitna danslistamenn sem nálgast viðfangsefni sín með rannsakandi huga og eru tilbúnir að takast á við starfsferil í fjölbreyttum og síbreytilegum heimi samtímadansins. Námið virkjar nemandann til gagnrýnnar nálgunnar við dansinn og gerir honum grein fyrir hlutverki sínu sem áhrifavaldur og afl til umbóta og auðgunar innan danssamfélagsins. Að loknu námi hafi nemandinn öðlast skilning á hlutverki og möguleikum listarinnar í samfélaginu. Áherls er lögð á að:

  • veita nemendum aukna danstæknilega færni og hreyfigetu er færir þeim innsýn í aðferðir samtímadansins og eflir þroska þeirra sem danslistamenn
  • móta sterka og örugga sviðsframkomu þar sem virk samskipti milli dansarans og áhorfandans eru höfð í fyrirrúmi
  • örva nemendur og styrkja sem sjálfstæða, víðsýna og skapandi listamenn
  • veita nemendum fræðilega þekkingu svo þeir efli með sér gagnrýna og framsækna hugsun

 

Markmið og tilgangur

Fyrsta árið er opnað fyrir breiðari skilning á hreyfingu og hugmyndum um hreyfimöguleika líkamans. Lögð er áhersla á að veita yfirsýn yfir þær kenningar forsendur hugtök og aðferðir sem eru grundvöllur áframhaldandi náms.

Á haustönn eru línurnar lagðar fyrir komandi ár með breiðum danstæknilegum grunni og stoðþjálfun auk þess sem líkamlegur og vitsmunalegur skilningur í tækniþjálfun er tengdur við listrænar hugmyndir og spuna. Markvisst er unnið að því að víkka hugmyndaheiminn, ögra til sjálfstæðrar skoðanamyndunar og brjóta upp fyrirfram ákveðnar hugmyndir um dans/dansarann og hlutverk hans í listasamfélaginu. Á vorönn er byrjað er að víkka út tjáningarmöguleika dansarans og einnig verður samband tónlistar og dans skoðað í gegnum mismunandi líkamlegar nálgunarleiðir.

Á öðru ári er haldið áfram að byggja upp og dýpka danstæknilega færni nemandans í listrænu samhengi og aukin áhersla er lögð á sköpunarkraft hans. Tjáningarmöguleikum dansarans fjölgar og þanþol hans er aukið. Á haustönn er unnið að því að tengja saman leiðir leiklistar og dans en á vorönn er áherslan á danssmíði og nýmiðla. Nemendur fá þjálfun í að beita helstu greiningartækjum fagsins og nýta þann skilning í framsetningu verkefna. Unnið er að frekari samþættingu fræða, tækni og listrænnar vinnu. Nemandinn hefur í lok annar öðlast skilning á fagumhverfi samtímans og möguleikum sínum sem einstaklingur innan sviðslistanna.

Þriðja árið er ár sjálfstæðis og úrvinnslu. Hér takast nemendur á við verkefni sem reyna á færni þeirra í skapandi og fræðilegum vinnubrögðum, skilning og yfirsýn. Á haustönn velur nemandinn sér starfsþjálfun eða skiptinám sem styður við þróun nemandans innan hans eigin áhugasviðs. Á vorönn fær nemandinn aukið sjálfstæði og ábyrgð í listrænu ferli og aukin áhersla er lögð á gagnrýna sýn hans á eigin vinnubrögð og aðferðir. Gerð er krafa á að hann nýti sínar listrænu og fræðilegu vinnuaðferðir á skapandi hátt í úrlausnum verkefna. Í lok ársins skal nemandinn vera fær um að takast á hendur rannsóknarvinnu er snýr að starfi dansarans. Nemandinn fær innsýn í atvinnuumhverfi dansarans með því að: öðlast sýningareynslu, vinna með atvinnufólki í faginu, vinna fullbúna sýningu, bera ábyrgð á listrænu ferli og vinna úr opinberri gagnrýni. Nemendinn tekur þátt í að koma danssýningu á framfæri og huga að öðrum þáttum er snerta rekstur atvinnudanshóps.

Í lok námsins skal nemandinn hafa gert sér grein fyrir möguleikum sínum sem listamaður innan fagsins og í samfélagslegu samhengi. Hann skal vera í stakk búinn til að bera ábyrgð á áframhaldandi þróun sinni innan fagsins.

 

Viðmið - Bakkalárpróf í samtímadansi

Um er að ræða 3ja ára nám í list dansarans. Námið er 180 ECTS á fyrsta þrepi stigi 2. Full námsframvinda á einu ári skal að jafnaði miðast við 60 ECTS. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun. Umsækjendur taka inntökupróf sem skiptist í tvö þrep og felst í verklegum æfingum og viðtölum. Með umsókn fylgi mappa (portofólíó) sem veiti upplýsingar um áhugasvið umsækjanda og hugmyndaheim. Bakkalárpróf veitir aðgang að framhaldsnámi á stigum 3 og 4 eða að kandídats- og meistaranámi. Þó geta skólar eða deildir krafist ákveðinnar lágmarkseinkunnar fyrir aðgang að stigi 3 og 4.

Við lok bakkalárprófs skal eftirfarandi viðmiðum náð til viðbótar þeim viðmiðum sem náð var af fyrra stigi:

 

Þekking og skilningur

Nemandinn hafi innsæi til að nálgast viðfangsefni greinarinnar á einstaklingsbundinn hátt. Hann hafi skilning á hugmyndafræði og þeim hugtökum sem liggja til grundvallar sviðslistum. Nemandinn skal þekkja til helstu strauma og áhrifavalda í menningu á hverjum tíma og þess umhverfis sem þeir spretta úr. Nemandinn skal búa yfir þekkingu á kenningum, hugtökum og aðferðum samtímadanslistar og geta beitt henni í fjölþættu verklegu- sem og fræðilegu samhengi. Nemandinn skal hafa góðan skilning á og geta nýtt sér tækni og búnað sem þjónar sviðslistum.

 

Tegund þekkingar

Nemandi hafi þekkingu á síbreytilegu vinnuumhverfi samtímadansarans. Hann skal hafa þjálfað með sér fjölþætta danstæknilega getu og sterka sviðsnærveru. Nemandinn geti nýtt sér núverandi samtímadanshefðir sem stökkpall til nýrrar danstæknilegrar og skapandi nálgunar. Nemandinn hafi þróað með sér skilning á hugmyndum og römmum spuna sem sýningarforms og samspili hans við önnur listform. Nemandinn hafi öðlast þekkingu á nálgunarleiðum, aðferðum og útfærslu danssmíða og geti nýtt sér mismunandi kveikjur til sköpunar. Nemandinn hafi góðan skilning á líkamanum sem vinnutæki dansarans og þekki leiðir til að viðhalda starfsþreki hans á heilbrigðan hátt

 

Hagnýt hæfni

Nemandinn hafi öðlast tæknilega færni, gagnrýna hugsun og sköpunarkraft til að geta starfað sem dansari á virkan og sjálfstæðan hátt í lifandi listflutningi. Hann á að geta sett sér markmið, gert verkáætlun og fylgt henni sem einstaklingur og innan hóps. Nemandinn geti tileinkað sér leiðsögn danshöfundar/leikstjóra og auðgað dansefnivið með persónulegri túlkun. Nemandinn geti mætt breytingum í atvinnuumhverfi sviðslistanna á skapandi hátt.

 

Fræðileg hæfni

Nemandinn hafi hæfni til að setja fram og lýsa fræðilegum atriðum og rannsóknaniðurstöðum. Hann geti beitt vísindalegum gagnrýnum aðferðum við greiningu viðfangsefna. Nemandinn hafi öðlast skilning og innsæi í helstu kenningar og hugtök sviðslistanna og geti lagt sjálfstætt mat á þær aðferðir sem nýttar eru innan hennar. Nemandinn skal sýna meðvitund um siðferðilegar skírskotanir og hlutverk listamannsins í samfélaginu.

 

Hæfni í samskiptum, upplýsingatækni og tölvulæsi

Nemandinn skal hafa sjálfstæði og samskiptahæfni til að geta unnið sem einstaklingur og innan hóps að listrænum verkefnum. Hann geti kynnt viðfangsefni sín og niðurstöður á tilheyrandi fagmáli með skýrum hætti í lifandi framsetningu sem og í rituðu og mæltu máli. Nemandinn geti nýtt sjálfsgagnrýni og jafningjagagnrýni til að bæta eigin frammistöðu. Nemandinn hafi skilning á þeim hugbúnaði sem tengist samtímadansinum og helstu nýjungum hverju sinni.

 

Námshæfni

Nemandinn hafi þróað með sér nauðsynlega námshæfni og sjálfstæð vinnubrögð til að geta tekist á hendur frekara nám. Hann hafi tileinkað sér víðsýni og frumleika í hugsun sem nýtist í námi og/eða starfi. Nemandinn hafi tamið sér leitandi vinnubrögð, frumkvæði og áræðni í úrlausnum. Nemandinn hafi ræktað ímyndunarafl sitt til sjálfstæðrar sköpunar og óhefðbundinnar nálgunar og sýni getu til áframhaldandi listrænnar og líkamlegrar þróunar innan dansins.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is