Zambrano námskeið

miðvikudagur, 20. janúar 2010

Inga Maren Rúnarsdóttir mun taka þátt í alþjóðlegu dansnámskeiði leiddu af dansfrömuðinum David Zambrano þar sem hann kennir tækni sína Flying-Low og Passing Through. Námskeiðið verður haldið í San Jose á Kosta Ríka og tekur 10 vikur en þetta mun vera lengsti samfelldi tími sem Zambrano hefur nokkru sinni varið í að kenna tækni sína á sama stað með sama hóp. Hópurinn er samsettur af 35 atvinnudönsurum sem eru útvaldir hvaðan af úr heiminum. Danssamtökin 8Reales sjá um skipulag námskeiðsins. Zambrano er að hefja starfslokaár sitt og mun einbeita sér að því að miðla afrekstri ævistarfs síns. Við lok þessa 50 daga námskeiðs mun hver nemandi fá kennsluréttindi í tækninni og skriflegt vottorð þess efnis að þeim sé heimilt að nota, eða þróa, Flying Low & Passing Through hvernig sem þeir kjósa.

 

 

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is