Dansmyndir

laugardagur, 16. janúar 2010

Helena Jónsdóttir mun halda fyrirlestur með þessum titli á þriðjudaginn 19. janúar 2010 kl. 21.00

Staður: Húsnæði sem Helena hefur til umráða og heitir Smiðjan, Sætúni 8. 2. hæð 105 Reykjavík.

Þessi staður er á bakvið gamla O.J.Kaaber húsið sem snúr að Sæbrautinni. Gengið (eða keyrt) er um svart járngrindahlið á milli O.J.Kaaber og bláa gamla Heimilistækjahússins. Í því porti/horni er hurð á gömlu bárujárnshúsi þar sem stendur „Járnsmiðjan“

Það verða kerti til að vísa ykkur leiðina. Vinsamlega leggið ekki bílum fyrir framan innkeyrsluhurðir.

Fyrirlesturinn er á vegum Íslenska dansfræðafélagsins og verður í framhaldi af aðalfundi þess sem hefst kl. 20.00

Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn þar sem Helena mun fjalla um reynslu sína af kvikmyndun á dansi og um vídeódans.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is