Endurómun
mánudagur, 11. janúar 2010
Aðeins tvær sýningar 13. og 14. janúar - á Litla Sviði Borgarleikhússins
Borgarleikhúsið kynnir stolt nýjan leikhúsmann til sögunnar, Leif Þorvaldsson sem útskrifaðist úr fræði og framkvæmd frá Listaháskóla Íslands síðast liðið vor. Útskriftarverk Leifs, Endurómun, kemur á fjalir Borgarleikhússins þann 13. og 14. janúar á Litla sviðinu, athugið aðeins þessar tvær sýningar. Leikhúsáhugafólki gefst hér einstakt tækifæri á að sjá þetta metnaðarfulla verk sem færði höfundinum hæstu einkunn við útskrift. Verkið var sett á svið í Listaháskólanum síðast liðið vor og segir meðal annars í umsögn prófdómaranna Unu Þorleifsdóttur og Stefáns Jónssonar um sýninguna: „Verkið var mjög vel unnið, í raun einstakt og sú upplifun sem áhorfendum var gefin mögnuð.“ Endurómun er hrein skynupplifun sem tekst að bjaga og tegja á skynfærum áhorfandans á sama tíma og sýningin færir okkur innsýn inn í nýjustu kenningar um mannsheilan. Útskýrð verða grunn ferli skynjunar, minninga og drauma.“
Höfundur:
Leifur Þór Þorvaldsson
Fram koma:
Leifur Þór Þorvaldsson, leiklistarmaður
Bergþóra Einarsdóttir, danslistakona
Laila Tafur, danslistakona
Viðvörun: Flogaveiku fólki er ráðlagt frá því að sjá sýninguna vegna notkunar blikkljósa (strope ljósa) í sýningunni sem þekkt er að geti framkallað flog eða aðra vanlíðan hjá flogaveikum.