Hnotubrjóturinn í Hannover

fimmtudagur, 31. desember 2009

Hildur Elín Ólafsdóttir tók þátt í nýrri uppfærslu af Hnotubrjótnum í óperuhúsinu í Hannover þar sem hún er fastráðin sem dansari.

Danshöfundurinn Jörg Mannes ákvað að vera bókinni eftir E.T.A Hoffmann trúr og segja söguna eins og margir þekkja hana. Auk þess kom hann fram lítilli sögu sem gerist í ævintýrinu sem vanalega hefur verið sleppt af mörgum danshöfundum. Sú saga er í rauninni um hvernig Hnotubrjóturinn varð til og er kölluð “ Ævintýrið um hörðu hnetuna”

Sýningar verða áfram í desember og halda áfram á nýja árinu. Hildur Elín dansar m.a. hlutverk snædrottningarinnar og svo hlutverk prinsessunnar í ævintýrinu um hörðu hnetuna.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is