Maríuhænan
miðvikudagur, 25. nóvember 2009
Dansleikhús án orða fyrir allra yngstu leikhúsgestina. ( 0 til 4 ára)
Sagan segir af hrekkjóttum álfi og óöruggri maríuhænu sem villast inn í litalaust land. Fljótlega taka undarlegir hlutir að gerast, steinar og sveppir blikka, sólin og tunglið svífa yfir og landið breytist í ævintýraskóg. Allt þetta hefur ólík áhrif á verurnar en að lokum sameinast þær og áhorfendur í dansi.
Í lok sýningarinnar og fá börnin svo að skoða sig um á sviðinu, spjalla við álfinn og klappa Maríuhænunni.
Sýningin er gestasýning frá Noregi, en hún hefur verið sýnd í Ósló og nágrenni og hefur alls staðar verið geysilega vel tekið og nú gefst íslenskum börnum tækifæri til að njóta hennar.
Sýnd í Kúlunni, Þjóðleikhúsinu 2-4. Desember kl. 10 og 17, og 5-6. desember kl. 13:30 og 15
Hugmynd, leikmynd og hreyfingar: Inger Cecilie Bertràn de Lis
Dansarar: Inger Cecilie Bertràn de Lis og Tinna Grétarsdóttir
Tónskáld: Karoline Rising Næss, Búningar: Hilde Brunstad, Ljós: Elisabeth K. Nilsson