Nemendasýning Listdansskóla Íslands
þriðjudagur, 24. nóvember 2009
Nemendasýning framhaldsdeildar Listdansskóla Íslands verður í Þjóðleikhúsinu mánudaginn 30.nóvember. Á sýningunni verður að vanda leitað í smiðju gamalla meistara svona í bland við frumsamin verk kennara skólans. Meðal annars má sjá verk, bæði gömul og ný sem Íslenski dansflokkurinn hefur haft á sinni efnisskrá auk verks sem Lára Stefánsdóttir samdi fyrir hóp 8 ungmenna sem þá voru á efsta stigi grunnskóla og sýnt var í Kuopio í Finnlandi í sumar. " Að vera, burtu að heiman, MOVE. Að vera, heim aftur, MOVE. Að vera......." Á einhvern hátt varð efnahagshrunið innblástur að verkinu. Fólk að bíða, leita, flytja, vona. MOVE var samið í tengslum við samnorrænt verkefni sem kallaðist Corridor sem aftur var hluti af öðru norrænu/baltnesku samstarfi sem kallast Keðja.
Miðaverðið er 1500,- . Frítt fyrir 12 ára og yngri. Gegn framvísun danskortsins fæst einn frímiði, móti einum keyptum miða. ATH. ÓNÚMERUÐ SÆTI.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin mánud og þriðjud. kl. 13:00-18:00, aðra daga vikunnar frá kl. 13:00 – 20:00. Miðapantanir í síma 551 1200 alla virka daga frá kl. 10:00.